Skip to content
EKTA
  • UPPSKRIFTIR
  • NÁMSKEIÐ

Hæ,

ég heiti Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir. Leiðin mín inn í prjónið var ekki alveg bein vegna þess að ég er örvhent og mamma kunni bara að kenna mér rétthent. það tók langan tíma fyrir mig að læra að elska prjónið en Í dag prjóna ég rétthent en fitja upp örvhent og það virkar vel fyrir mig. Kannski táknrænt fyrir það hvernig ég nálgast prjónið almennt, ég vil skilja hefðirnar en líka finna leiðina sem hentar mér.

Ég er útskrifaður fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands og hef unnið við fata- og prjónahönnun í mörg ár. 

Fyrsta uppskriftin mín kom út 2004 fyrir Ístex og síðan hef ég hannað fjölda uppskrifta fyrir þau.

Ég var einn af stofnendum og aðalhönnuður As We Grow í tíu ár og kynntist þá náið hvernig verksmiðjuframleiðsla á prjónafatnaði fer fram.

Í dag nýti ég þekkingu mína úr fataframleiðslu til þess að búa til flíkur án síðasta söludags. 

Í mínum huga er prjón mótvægi við neyslusamfélagið og fjöldaframleiðslu. Þar eru ræturnar. Mín eigin handgerðu föt í fataskápnum eru toppurinn. Hið eina sanna „slow fashion” . Ég kann að meta gæði.

Áherlslan hjá EKTA er á klassískar, tímalausar flíkur. Fagurfræðin, gæðin og smáatriðin eru höfð í hávegum. Hvernig hefðir í íslensku prjóni hafa þróast. Ég laðast mikið að árunum milli 1950-70 en finn alltaf leið til að láta hlutina passa inn í nútímann.

Þegar hugur og hönd vinna saman gerast töfrar sem erfitt er að útskýra. Áhugi minn liggur í að skapa og þróa í handverkinu sjálfu. Úthugsa smáatriðin og passa að flíkin sitji rétt.

Þetta er ferli með tilgang. Ég nýt alls ferilsins, líka þegar ég þarf að rekja upp. Ég set hjarta og sál í að skrifa leiðbeiningar sem eru nákvæmar og blátt áfram svo allir geti skilið þær og treyst uppskriftinni.

  • Um EKTA
  • Skilmálar
  • Persónuvernd
  • Hafa samband

Fara efst á síðu

© EKTA 2026

EKTA
Manage Consent

Vefurinn notarst við vafrakökur. Með því að samþykkja er veitt leyfi til að nýta gögn um vafrahegðun. Með því að hafna getur það haft áhrif á upplifun þína af þessum vef.

Functional Always active
The technical storage or access is strictly necessary for the legitimate purpose of enabling the use of a specific service explicitly requested by the subscriber or user, or for the sole purpose of carrying out the transmission of a communication over an electronic communications network.
Preferences
The technical storage or access is necessary for the legitimate purpose of storing preferences that are not requested by the subscriber or user.
Statistics
The technical storage or access that is used exclusively for statistical purposes. The technical storage or access that is used exclusively for anonymous statistical purposes. Without a subpoena, voluntary compliance on the part of your Internet Service Provider, or additional records from a third party, information stored or retrieved for this purpose alone cannot usually be used to identify you.
Marketing
The technical storage or access is required to create user profiles to send advertising, or to track the user on a website or across several websites for similar marketing purposes.
  • Manage options
  • Manage services
  • Manage {vendor_count} vendors
  • Read more about these purposes
View preferences
  • {title}
  • {title}
  • {title}

Karfan þín (items: 0)

Products in cart

Vara Details Samtals
Subtotal 0 kr.
Discounts calculated at checkout.
Skoða körfu
Klára kaup

Karfan þín er tóm!

Versla

Notifications