Akkeri

Prjónauppskrift

1.250 kr.

Þessi peysa er æfing í tvíbandaprjóni enda símynstruð. Hún er prjónuð neðanfrá og upp með laskaúrtökum. Hálsmálið er mótað með því að geyma lykkjur við hálsmál og prjóna þær síðan allar í lokin. Hreyfivíddin er 5-15 cm.


 

Stærðir: XS (S) M (L) XL

Yfirvídd: 93 (100) 107 (113) 120 cm

 

Garn:Hjelholts Håndværksgarn (100g = 200m) eða ístex Léttlopi 2 (50g = 100m)

Garnmagn:
Litur A (aðallitur) 350 (400) 400 (450) 500  gr
Litur B (mynsturlitur) 150 (150) 200 (250) 300  gr

 

Prjónfesta: 18 L x 24 umf = 10 x 10 cm  í sléttprjóni

Prjónar: 5mm hringprjónar – 40 og 80 cm langir og sokkaprjónar. 4½mm hringprjónar 40 og 80 cm langir og sokkaprjónar. Ef þú notar töfralykkju þarftu ekki 40cm hringprjóna og sokkaprjóna.

 

Svarta peysan er prjónuð úr Ístex Léttlopa í litunum Hærusvartur (0005) og Hvítur (0051). Brúna peysan er prjónuð úr Hjelholts Håndværksgarni í litunum Kastanjebrun (12) og Creme (35).

 

Uppskriftin er send sem PDF rafrænt á uppgefið netfang þegar greiðsla hefur farið fram.